2024-04-22 15:40:33 CEST

2024-04-22 15:40:33 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Ljósleiðarinn ehf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Fjármálastýra Ljósleiðarans lætur af störfum


Halla Björg Haraldsdóttir, fjármálastýra Ljósleiðarans, hefur látið af störfum hjá félaginu. Fjármálasvið Orkuveitunnar, móðurfélag Ljósleiðarans, mun taka við almennum rekstri.

„Við þökkum Höllu vel unnin störf fyrir Ljósleiðarann og óskum henni velfarnaðar í nýjum verkefnum,“ segir Einar Þórarinsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans.

„Hjá Ljósleiðaranum hefur verið gott að starfa og ég er reynslunni ríkari eftir að hafa tekist á við stór og flókin verkefni. Nú er rétti tíminn fyrir mig að leita á ný mið og takast á við annarskonar verkefni. Ég óska Ljósleiðaranum alls hins besta,“ segir Halla Björg Haraldsdóttir fráfarandi fjármálastýra Ljósleiðarans.

Nánari upplýsingar:
Breki Logason
Samskiptastjóri Orkuveitunnar
6985671