|
|||
2012-04-11 15:08:24 CEST 2012-04-11 15:09:25 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirBorgarráð samþykkir stofnun á nýjum skuldabréfaflokkiBorgarráð samþykkti á fundi sínum þann 29. mars 2012 eftirfarandi tillögu: „Lagt er til að stofnaður verði nýr skuldabréfaflokkur til 7 ára að fjárhæð allt að 3.500.000.000 til að nýta þau tækifæri sem nú bjóðast á fjármálamarkaði til að lækka fjármagnskostnað borgarinnar. Fjármálastjóra verði veitt umboð f.h. Reykjavíkurborgar til þess að undirrita nauðsynlega gerninga, sem og til þess að móttaka og undirrita, gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast stofnun þessa nýja skuldabréfaflokks. Fjármálastjóra verði falið að ákveða m.t.t. markaðsaðstæðna í hverju útboði á þessu ári hvort boðið verður út í nýjum flokki eða í RVK09 1.“ Ekki er búið að ákveða útboðsskilmála eða hvenær útboð munu fara fram í nýja flokknum. En tilkynningar þar að lútandi verða birtar í kauphallarkerfi NASDAQ/OMX. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|