|
|||
2009-09-17 12:33:32 CEST 2009-09-17 12:34:32 CEST REGULATED INFORMATION Verðbréfun hf. - Fyrirtækjafréttir- Rekstri Verðbréfunar hf. verður hættStjórn Verðbréfunar hf. samþykkti á fundi sínum þann 16. september 2009 samkomulag við NBI hf. um kaup á útistandandi skuldabréfum Verðbréfunar hf. á uppgreiðsluvirði safnbréfanna. Leitast verður eftir samþykki kröfuhafa safnbréfanna og er stefnt að uppgjöri þann 1.12.2009. Tilgangur Verðbréfunar hf. hefur verið kaup og eignarhald safna fasteignaveðlána af Landsbanka Íslands hf. og að standa að eigin fjármögnun með útgáfu markaðshæfra skuldabréfa. Þann 8.10.2008 var hlutur Landsbanka Íslands hf. seldur NBI hf. Eigendur útgefinna skuldabréfa eru samtals fimm og er heildarnafnverð útistandandi skuldabréfa 143 m.kr. Undanfarin ár hefur rekstur Verðbréfunar hf. verið í lágmarki og ekki verið um útgáfur markaðshæfra skuldabréfa. Nánari upplýsingar veitir Haukur Agnarsson framkvæmdastjóri í síma 410 7735. |
|||
|