2008-05-21 15:25:26 CEST

2008-05-21 15:26:25 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
FL GROUP hf. - Fyrirtækjafréttir

Yfirlýsing frá FL Group


Reykjavík, 21. maí 2008: Vegna athugasemdar OMX Nordic Exchange á Íslandi
(“OMX”) við upplýsingagjöf FL Group í tengslum við tvö tilvik vill FL Group
taka eftirfarandi fram: 

FL Group  er ósammála niðurstöðu OMX í báðum tilvikum. FL Group telur forsendur
OMX á misskilningi byggðar og niðurstöðuna ekki vera nægilega rökstudda. 
Í tilfelli sölu hlutabréfa í AMR í lok nóvember 2007 var ákveðið að tilkynna um
viðskiptin á sama tíma í New York Stock Exchange, heimamarkaði hlutabréfanna og
á OMX. Í tilfelli sölu bréfa í Commerzbank var um að ræða sölu á stórum
eignarhluta í mörgum smáum skömmtum yfir margra vikna tímabil. Uppsöfnuð
viðskipti voru tilkynnt OMX í samræmi við lög og reglur þar um, að mati FL
Group. 

FL Group telur að í báðum tilvikum hafi verið staðið fullkomlega eðlilega að
umræddri upplýsingagjöf, samkvæmt lögum og reglum og með hagsmuni félagsins og
hluthafa þess að leiðarljósi. 

Þá telur FL Group að OMX hafi enga heimild til að taka ákvörðun um „beitingu
opinberrar áminningar“. OMX hefur heimild til að birta opinbera yfirlýsingu
varðandi mál sbr. 3. lið greinar 8.3. í Kauphallarreglum en hefur ekki heimild
til að beita opinberum áminningum. Hvergi í reglum OMX, samningum OMX við
útgefendur, lögum eða reglum er kveðið á um heimild til OMX til að áminna
útgefendur. 

Frekari upplýsingar veitir:
Júlíus Þorfinnsson
Forstöðumaður samskiptasviðs FL Group
Sími: 591 4400
julius@flgroup.is