|
|||
2016-05-25 19:30:51 CEST 2016-05-25 19:30:51 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Héraðsdómur í skaðabótamáli vegna innbrots á "Mínar síður"Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í dag upp dóm í skaðabótamáli sem höfðað var af einstaklingi sem byggði á því að hafa orðið fyrir tjóni vegna upplýsinga sem tölvuþrjótur stal af "Mínum síðum" á heimasíðu Fjarskipta hf. í nóvember 2013. Höfuðstóll bótakröfunnar í málinu hljóðaði upp á 8.424.500 kr. Niðurstaða héraðsdóms var sú að Fjarskipti hf. var dæmt skylt að greiða skaðabætur að fjárhæð 1.936.500 kr. auk málskostnaðar að fjárhæð 1.000.000 kr. og vaxta og dráttarvaxta. Með þessu hafa verið kveðnir upp héraðsdómar í þeim sex málum sem höfðuð hafa verið vegna innbrotsins á "Mínar síður". Áður hafði félagið verið sýknað í málum tveggja einstaklinga en var dæmt skylt til að greiða skaðabætur í málum þriggja einstaklinga, samtals að fjárhæð 2.700.000 kr., auk vaxta og málskostnaðar, sbr. kauphallartilkynning félagsins, dags. 26.4. 2016. Fjarskipti hf. er að kynna sér forsendur allra dómanna og meta framhaldið. Innan Fjarskipta hf. hefur mikil vinna átt sér stað undanfarin ár á sviði öryggismála og hefur félagið kappkostað að læra af reynslunni. Innleiðingarferli öryggisvottunar upplýsingakerfa samkvæmt ISO-27001 upplýsingaöryggisstaðlinum var hafið þegar fyrrnefnt innbrot átti sér stað en fyrirtækið fékk vottun í júlí 2014 á grundvelli staðalsins sem var síðan uppfærð árið 2015 og tekur nú til alls fyrirtækisins. Vottunin felur í sér formlega viðurkenningu á því að hjá Vodafone sé upplýsingaöryggi stjórnað samkvæmt fyrirfram ákveðnum ferlum og fagleg vinnubrögð viðhöfð í hvívetna. Vottunin tryggir jafnframt stöðugar umbætur í upplýsingaöryggismálum og veitir þannig jákvætt aðhald en úttekt fer árlega fram. [HUG#2015617] |
|||
|