|
|||
![]() |
|||
2016-05-26 13:46:31 CEST 2016-05-26 13:46:31 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirReykjavíkurborg - RVKN 35 1Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs í flokknum RVKN 35 1 miðvikudaginn 8.júní. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 280 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í hvorum skuldabréfaflokki bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 2.900 m.kr. að nafnvirði. Heimild til lántöku á árinu 2016 er 2.246 m.kr. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 13.júní 2016. Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 8. júní. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali: Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|