|
|||
![]() |
|||
2017-04-27 17:51:55 CEST 2017-04-27 17:51:55 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - Niðurstöður hluthafafundarSkipað í stjórn Landsvirkjunar á aðalfundi
Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru:
Þetta er í fyrsta sinn í sögu Landsvirkjunar sem konur eru í meirihluta stjórnar. Úr stjórn fóru Jón Björn Hákonarson, Helgi Jóhannesson og Þórunn Sveinbjarnardóttir en þau hafa setið í stjórn fyrirtækisins frá árinu 2014 og var þeim þakkað fyrir vel unnin störf. Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru: Ásta Björg Pálmadóttir, Páley Borgþórsdóttir, Lárus Elíasson, Ragnar Óskarsson og Albert Svan Sigurðsson. Aðalfundurinn staðfesti skýrslu fráfarandi stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið reikningsár, sem má finna í rafrænni ársskýrslu á landsvirkjun.is. Jafnframt var Deloitte ehf. kosið endurskoðunarfyrirtæki Landsvirkjunar að fenginni tillögu Ríkisendurskoðunar.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Haraldur Flosi Tryggvason var kjörinn varaformaður.
Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2016.
|
|||
|