|
|||
2017-04-27 18:30:33 CEST 2017-04-27 18:30:33 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - ÁrsreikningurNýherji hf. - Uppgjör 1. ársfj. 2017Tekjur á fyrsta fjórðungi jukust um 20% og EBITDA nam 242 mkr. Eiginfjárhlutfall í 40%. Helstu upplýsingar: · Sala á vöru og þjónustu nam 3.996 mkr á fyrsta ársfjórðungi (20% tekjuvöxtur frá F1 2016) [F1 2016: 3.332] · Framlegð nam 976 mkr (24,4%) á fyrsta ársfjórðungi [F1 2016: 885 mkr (26,6%)] · EBITDA nam 242 mkr (6%) á fyrsta ársfjórðungi [F1 2016: 180 mkr (5,4%)] · Heildarhagnaður á fyrsta ársfjórðungi nam 71 mkr (1,8%) [F1 2016: 38 mkr (1,1%)] · Eiginfjárhlutfall var 39,7% í lok fyrsta ársfjórðungs, samanborið við 33,7% í lok árs 2016 · Vaxtaberandi langtímaskuldir voru greiddar niður um 300 mkr á fyrsta ársfjórðungi · Starfsmenn innleystu kauprétti að kaupverði 149 mkr á fyrsta ársfjórðungi, kom til greiðslu í byrjun apríl Finnur Oddsson, forstjóri: „Rekstur samstæðunnar gekk um margt vel á fjórðungnum og er á áætlun. Við erum ánægð með ágæta afkomu og áframhaldandi tekjuaukningu, um 20% á milli ára. Gott gengi að undanförnu hefur gert okkur kleift að grynnka verulega á skuldum og styrkja eiginfjárstöðu, sem hefur sjaldan verið sterkari. Sala á tölvum og hljóð- og myndlausnum er sem fyrr stór hluti af okkar starfsemi en tekjur af hýsingar- og rekstrarþjónustu aukast heldur meira, m.a. vegna nýrra verkefna á borð við upplýsingatæknirekstur fyrir Arion banka frá því í byrjun árs. Vöxtur hugbúnaðartengdrar starfsemi dregur vagninn í tekjuvexti félagsins eins og síðustu fjórðunga og áhersla á vöruþróun og sölu eigin lausna hefur aukist. Til marks um það hafa áskriftartekjur í Kjarna, launa- og mannauðslausn Applicon, nálægt þrefaldast á milli ára og vinna við nýsköpunar- og þróunarverkefni lofar góðu. Innleiðing á kjarnabankakerfum fyrir SBAB í Svíþjóð fer vel af stað og felur í sér umtalsverða vinnu fyrir sérfræðinga þar og á Íslandi. Tekjuvöxtur er áfram sterkur hjá TM Software, afkoma góð og unnið að spennandi vöruþróunverkefnum. Hjá Tempo gengur áfram vel og tekjur á fjórðungnum námu 4,4 mUSD, sem er 46% aukning. Viðskiptavinur númer 10.000 slóst í hópinn, sem er stór áfangi og endurspeglar styrk lausna Tempo. Samstarfs- og söluaðilar Tempo eru nú yfir 100 á heimsvísu, um fimmtungur starfsfólks vinnur nú í Kanada og Bandaríkjunum og stefnt að frekari fjölgun þar. Ágæt eftirspurn er á flestum sviðum samstæðunnar, einkum eftir hýsingar- og rekstrarþjónustu og hugbúnaðarlausnum af ýmsu tagi. Horfur eru því góðar.“ Nánari upplýsingar Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is. Sjá viðhengi. |
|||
|