2017-02-09 11:52:28 CET

2017-02-09 11:52:28 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbréf hf. - Ársreikningur

Rekstur Landsbréfa hf. skilaði 702 milljóna kr. hagnaði á árinu 2016


Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2016.  Helstu
niðurstöður voru þessar: 

  -- Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 702 milljónum króna á árinu 2016,
     samanborið við 616 milljóna króna hagnað fyrir rekstrarárið 2015.
  -- Hreinar rekstrartekjur námu 1.730 milljónum króna á árinu 2016 samanborið
     við 1.569 milljónir króna rekstrarárið 2015.
  -- Eigið fé Landsbréfa í árslok 2016 nam um 3.150 milljónum króna samanborið
     við 2.448 milljónir króna í lok 2015.
     
     Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var
     112,58% samanborið við 86,46% árið áður, en hlutfall þetta má lægst vera
     8%.
  -- Í lok tímabilsins stýrðu Landsbréf eignum fyrir 31 sjóði og félög og eru
     hlutdeildarskírteinishafar í sjóðum félagsins um 13 þúsund talsins.
  -- Starfsmenn voru 17  í árslok og var starfsmannafjöldi óbreyttur milli ára. 
     
  -- Eignir í stýringu voru um 184 milljarðar króna í árslok samanborið við um
     129 milljarða króna árið áður.

Rekstur Landsbréfa gekk mjög vel á árinu 2016. Umsýsluþóknanir félagsins jukust
um 32% á milli ára og skilaði félagið góðum hagnaði eða 702 milljónum króna,
sem svarar til rúmlega 28,7% arðsemi eigin fjár. Innlendur verðbréfamarkaður,
einkum hlutabréfamarkaður, skilaði lakari ávöxtun en árið á undan, en þrátt
fyrir það voru verðbréfa- og fjárfestingasjóðir Landsbréfa almennt að vaxa á
árinu.  Á árinu voru stofnaðir fjórir nýjir sjóðir. Af nýjum afurðum á árinu má
nefna annars vegar fagfjárfestasjóðinn Landsbréf - Veðskuldabréfasjóð slhf.,
sem fjárfestir í fasteignatryggðum skuldaskjölum, og hins vegar
fjárfestingarsjóðinn Landsbréf – Global Portfolio sem fjárfestir á erlendum
verðbréfamörkuðum. 



Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:



„Rekstur Landsbréfa gekk vel á árinu og hefur félagið fest sig í sessi sem eitt
öflugasta sjóðstýringarfyrirtæki landsins. Á árinu varð verulegur vöxtur á
eignum í stýringu Landsbréfa og almennt gekk rekstur sjóða vel.  Félagið leggur
metnað í að hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspeglast það í fjölbreyttu
sjóðaframboði félagsins, þar sem er að finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum
flestra fjárfesta.“ 



Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason,
framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.