2015-03-09 14:37:34 CET

2015-03-09 14:38:34 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Orkuveitan og Dexia Credit Local semja um breytingu á gjalddögum


Reykjavík, 2015-03-09 14:37 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Orkuveita Reykjavíkur og
Dexia Credit Local hafa komist að samkomulagi um endurröðun gjalddaga á lánum
bankans. Með breytingunum er afborgunum dreift meira en áður var gert ráð fyrir
og fela þær í sér endurfjármögnun á alls 33,3 milljónum evra, sem greiðast áttu
í október næstkomandi, en jafnframt er endurgreiðslutími lengri lána styttur.
Veginn meðallíftími lána breytist óverulega og vaxtaálag er óbreytt. 

Með samkomulaginu eru afborganir OR jafnari og er það í takti við aukinn
stöðugleika í rekstri fyrirtækisins, sem unnið hefur verið að með aðhaldi í
rekstri og auknum áhættuvörnum. 

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt breytinguna með fyrirvara um
staðfestingu eigenda OR.