2024-09-16 19:05:00 CEST

2024-09-16 19:05:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Arion banki hf: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 25. júlí 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar og 30. ágúst um stækkun endurkaupaáætlunar. Í 37. viku 2024 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Hlutir í eigu Arion
9.9.202409:31:491.000.000143143.000.00094.180.571
9.9.202410:59:5555.0001437.865.00094.235.571
9.9.202411:00:38500.00014371.500.00094.735.571
9.9.202411:03:4645.0001436.435.00094.780.571
10.9.202410:02:161.000.000141,25141.250.00095.780.571
10.9.202412:15:31100.000139,513.950.00095.880.571
11.9.202410:41:10500.00014070.000.00096.380.571
11.9.202414:38:52100.000138,513.850.00096.480.571
  3.300.000
467.850.00096.480.571

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
13.9.202414:05:5090010,259.2253.094.309
13.9.202414:23:1587710,258.9893.095.186
13.9.202414:23:4087710,258.9893.096.063
13.9.202415:24:452910,252973.096.092
  2.683
27.5013.096.092

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 37 samtals 96.273.980 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 37 samtals 99.576.663 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 6,58% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 26.960.000 hluti og 15.120 heimildarskírteini í tengslum við áætlunina.

Heimilt er að kaupa allt að 384.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,0254% af útgefnum hlutum og allt að 31.321.362 hluti á Íslandi, eða sem svara til 2,0696% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 2,0949% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 50.000.000 kr. í Svíþjóð og 3.888.816.794 kr. á Íslandi (samtals 3.938.816.794 króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 12. mars 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.