2012-09-04 20:26:16 CEST

2012-09-04 20:27:17 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Samkomulag um kaup á fasteignum KEA hótela


Í dag 4.september 2012 hefur Reginn hf. gert samkomulag um kaupsamning við
Krypton ehf., eiganda fasteigna KEA hótela á Akureyri  og Keahótel ehf.
rekstraaðila hótelsins um kaup á fasteigninni sem hýsir rekstur hótel KEA  þ.e.
 Hafnarstræti  83-89, Akureyri. Hluti af samkomulaginu er áframhaldandi
leigusamningur við Keahótel ehf.  Samkomulagið er gert með fyrirvara um
niðurstöður úr áreiðanleikakönnun. Aðilar setja sér sem markmið að undirritun
endanlegs kaupsamnings liggi fyrir í fyrstu viku októbermánaðar. Kaupverðið er
trúnaðarmál en áhrif kaupanna ef af verða eru áætluð  yfir 5% aukning á EBITDA
Regins hf.