2011-09-21 17:58:22 CEST

2011-09-21 17:59:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fjölgun aðalmiðlara LSS24


Í dag 21. september, skrifaði Landsbankinn hf. undir samninga hjá Lánasjóði
sveitarfélaga í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á
eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að
lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. 

Frá 21. september 2011 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf.,
Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og MP banki hf. 

  -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum lánasjóðs sveitarfélaga.
  -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í
     útboðum skuldabréfa lánasjóðsins fyrir a.m.k. 100 milljónir króna.
  -- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem
     lánasjóðurinn veitir.
  -- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS24 og setur fram kaup-
     og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í Nasdaq OMX á Íslandi.
  -- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans
     haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum.
  -- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að
     þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi
     fyrir 200 m.kr. að nafnvirði er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun
     kaup-og sölutilboða.

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar
um réttindi og skyldur samningsaðila. 

Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson, sími: +354 515 4947,
netfang:  egill@lanasjodur.is