|
|||
2015-09-24 11:31:36 CEST 2015-09-24 11:32:36 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki og Landsbankinn gera með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfumArion banki hf., og Landsbankinn hf. hafa gert með sér samning um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum á Nasdaq OMX Iceland hf. útgefnum af Arion banka. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndum verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Landsbankinn mun daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði í markflokka skuldabréfa skal vera 80 m. kr. en lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka skal vera 20. m. kr. Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 21, ARION CBI 29 og ARION CB 22 eru markflokkar. Hámarksmunur kaup og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreind töflu. Miða skal við árafjölda til gjalddaga. Á gildistíma samnings skal hámarksmunur kaup og sölutilboða breytast í samræmi við tíma sem eftir er til gjalddaga sbr. neðangreindri töflu: Árafjöldi til lokagjalddaga Hámarksmunur ----------------------------------------------------------- 0-6 mán Ekki skilgreindur hámarksmunur ----------------------------------------------------------- 6 mán - 2 ár 0,20% ----------------------------------------------------------- 2-4 ár 0,30% ----------------------------------------------------------- 4-6 ár 0,35% ----------------------------------------------------------- 6-9 ár 0,60% ----------------------------------------------------------- 9-12 ár 0,70% ----------------------------------------------------------- 12-18 ár 1,00% ----------------------------------------------------------- 18 ár eða lengra 1,15% ----------------------------------------------------------- Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Landsbankanum er skylt að eiga með skuldabréfaflokka sem falla undir þennan samning hvern dag sem Landsbankinn er skuldbundinn til að setja fram tilboð samkvæmt samningi þessum skal vera samtals kr. 500 milljónir,- að nafnvirði samanlagt í öllum skuldabréfaflokkum. Arion banki mun veita Landsbankanum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán til Landsbankans í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumarður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|