|
|||
2015-09-24 11:43:34 CEST 2015-09-24 11:44:35 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirFitch Ratings gefur út skýrslu um fjárhag ORFitch Rating, 2015-09-24 11:43 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur gefið út skýrslu fyrirtækisins um grundvöll lánshæfismats þess á Orkuveitu Reykjavíkur. Skýrslan er til upplýsingar fyrir fjármálamarkaðinn en í henni er ekki gefin út ný einkunn. Í febrúar síðastliðnum gaf Fitch Ratings OR einkunnina BB- með stöðugum horfum. Grunneinkunn Orkuveitunnar í matinu er tveimur þrepum hærri en hún fékk frá lánshæfisfyrirtækinu Moody‘s í desember 2014. Næstu einkunnar OR hjá Fitch Ratings er að vænta í haust en skýrslan, sem nú er gefin út, miðast við hálfsársuppgjör samstæðu OR, sem birt var 24. ágúst 2015. |
|||
|