2015-02-24 12:14:56 CET

2015-02-24 12:15:57 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Farice ehf. - Ársreikningur

Ársuppgjör Farice fyrir árið 2014


Áframhaldandi rekstrarbati hjá Farice

Í fyrsta sinn síðan 2007 varð rekstrarhagnaður af starfsemi Farice fyrir
fjármagnsliði og nam hann 260 þúsund evrum samanborið við 910 þúsund evru tap
árið 2013.  EBITDA var 7,6 milljónir evra miðað við 6,7 milljónir árið 2013.
Fjármagnskostnaður var 4,1 milljónir evra.  Heildartekjur félagsins námu 13,6
milljónum evra og jukust um 11% frá fyrra ári.  Handbært fé frá rekstri var 5,3
milljónir evra.  Áfram er gert ráð fyrir bata í rekstri og er félagið í skilum
með öll lán. 



Farice er fyrirtæki á sviði gagnaflutninga- og fjarskiptasambanda við útlönd og
starfsemi þess er mikilvæg fyrir íslenskt samfélag vegna ábyrgðar á samskiptum
Íslands við umheiminn.  Fyrirtækið rekur tvo sæstrengi á milli Íslands og
Evrópu og kaupir framhaldssambönd á landi og býr þannig til samskiptakerfi
fyrir Ísland sem tengist öðrum samskiptakerfum í helstu tengistöðvum í Evrópu. 



Eins og á síðasta ári gekk kerfisrekstur félagsins vel og ekkert rof varð á
sambandi Íslands við umheiminn.  Endabúnaður sæstrengja félagsins var
endurnýjaður á síðasta ári sem margfaldar flutningsgetu kerfisins og félagið
því vel í stakk búið til að mæta þörf fyrir aukna bandvídd gagnavera og
almennra notenda. 



Nánari upplýsingar veitir:

Ómar Benediktsson 585 9701