|
|||
2009-02-04 07:05:00 CET 2009-02-04 07:06:30 CET REGULATED INFORMATION Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - ÁrsreikningurAfkoma Straums-Burðaráss fjárfestingabanka árið 20084. febrúar 2009 Helstu niðurstöður ársins 2008 * Grunntekjur, þ.e. hreinar vaxtatekjur og hreinar þóknunartekjur, námu 180,9 milljónum evra árið 2008. * Tap af fjárfestingum nam 103,0 milljónum evra. * Rekstrartekjur voru alls 85,8 milljónir evra. * Rekstrarkostnaður var alls 125,8 milljónir evra. * Virðisrýrnun lána og viðskiptakrafna nam 413,5 milljónum evra * Virðisrýrnun óefnislegra eigna nam 327,7 milljónum evra. Þetta hefur ekki áhrif á lögboðið eigið fé og sjóðstreymi. * Tap eftir skatta nam 699,3 milljónum evra á árinu 2008. Tap fyrir skatta nam 780,6 milljónum evra. * Tap á hlut nam 0,073 evrum. * Heildareignir 31. desember 2008 námu 3.425,6 milljónum evra, sem er 52% lækkun frá ársbyrjun. * Eiginfjárhlutfall (CAD) var sterkt þann 31. desember 2008 eða 16,9%. Eiginfjárþáttur A var 14,6%. Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs 2008 * Grunntekjur námu 35,9 milljónum evra. * Tap af fjárfestingum nam 4,3 milljónum evra. * Rekstrartekjur námu 35,4 milljónum evra. * Rekstrarkostnaður nam 33,1 milljón evra. * Virðisrýrnun lána og viðskiptakrafna nam 291,2 milljónum evra og virðisrýrnun óefnislegra eigna nam 327,7 milljónum evra. * Tap eftir skatta nam 574,5 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi og nær til 618,9 milljóna evra virðisrýrnunar. Birting ársreiknings Straumur -Burðarás fjárfestingabanki hf. ("Straumur") birtir nú bráðabirgða afkomuniðurstöður sínar fyrir árið 2008 og fjárhagsstöðu fyrir árið sem endaði 31. desember 2008, samkvæmt nýjum reglum Kauphallar Íslands. Bráðabirgðaársreikningur fyrir árið 2008 var ræddur á stjórnarfundi Straums þann 3. febrúar 2009. Reikningurinn hefur þó ekki verið samþykktur af stjórn félagsins og endurskoðendum þess. Ársreikningur fyrir árið 2008 verður lagður fyrir stjórn félagsins og endurskoðendur þess til samþykktar í vikunni sem hefst 9. mars 2009 og birtur samdægurs. Bráðabirgðaársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegu reikningsskilastaðlana (IFRS). William Fall, forstjóri Straums Við höldum áfram starfsemi okkar á sérstaklega erfiðum tímum og mörkuðum. Sterk fjárhagstaða bankans ásamt minni áhættu hefur komið okkur í gegnum vaxandi erfiðleika ársins sem er að líða. Þessir leiðandi þættir í stefnu okkar munu reynast okkur vel í framtíðinni. Markmiðið er að þróa fjárfestingabanka með alþjóðlega útbreiðslu og hlutfallslega lítinn efnahagsreikning. Áherslan í starfseminni er sem áður á öfluga ráðgjöf, miðlun og rannsóknir. Samþætting Teathers við Straum í London er lokið að fullu með tilkomu rúmlega 70 nýrra viðskiptavina og sérstaklega styður greiningardeild Teathers, með áherslu á meðalstór fyrirtæki, vel við starfsemi okkar í öðrum löndum. Wood og Stamford Partners náðu einstaklega góðum árangri á árinu miðað við markaðsaðstæður og eQ hefur viðhaldið markaðshlutdeild sinni við erfið skilyrði. Afar sterk eiginfjárstaða hefur hjálpað Straumi gegnum þetta umrót. Mjög hefur reynt á styrk efnahagsreikningsins, einkum á síðasta fjórðungi ársins vegna á virðisrýrnun lána og gengislækkun eigna, samt ljúkum við árinu með eiginfjárhlutfalli (CAD) sem er tvöfalt meira en lögboðið lágmark. Sterk áhættustýring og heilindi hafa tryggt að engar færslur eru á efnahagreikningnum sem eru skaðlegar fyrir orðspor félagsins. Með skýrri stefnu, sterkum starfsstöðvum og hreinum efnahagsreikningi, mætum við verkefnum á nýju ári með ákveðni sem mun skila okkur að settu marki. Nánari upplýsingar veita: Stephen Jack Fjármálastjóri stephen.jack@straumur.com +44 7885 997570 Georg Andersen Forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs georg@straumur.com +354 585 6707 |
|||
|