|
|||
2022-06-24 12:22:00 CEST 2022-06-24 12:22:00 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta árs 2022Borgarráð samþykkti á fundi sínum 23. júní 2022 útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir seinni hluta árs 2022. Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 10. ágúst, 7. september, 12. október, 2. nóvember og 7. desember. Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á virkum skuldabréfaflokkum borgarsjóðs, þ.e. í skuldabréfaflokkum RVK 53 1, RVK 32 1, RVKG 48 1 (verðtryggðir) og í skuldabréfalokkum RVKN 35 1 og RVKNG 40 1 (óverðtryggðir). Samkvæmt samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir að borgarsjóður taki lán fyrir allt að 25.000 m.kr. Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. Nánari upplýsingar gefur: |
|||
|