|
|||
![]() |
|||
2015-03-09 17:13:10 CET 2015-03-09 17:13:47 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - HluthafafundirFjarskipti hf. : Tilnefningarnefnd Fjarskipta hf. skilar tillögumEins og fram kom í auglýsingu aðalfundar Fjarskipta hf., sem birt var 25. febrúar sl., var unnt að koma framboðum til stjórnar á framfæri við sérstaka tilnefningarnefnd, sem starfar á grundvelli leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja. Vegna eðlis og umfangs starfa nefnarinnar skyldi framboðstilkynning berast eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund félagsins, sem fram fer 19. mars nk. Nefndin hefur nú farið yfir þau framboð sem bárust innan þessa tímamarks og skilað tillögum sínum, sem eru meðfylgjandi. Nefndin leggur til að þau Heiðar Guðjónsson, Anna Guðný Aradóttir, Hildur Dungal, Hjörleifur Pálsson og Vilmundur Jósefsson verði kjörin til áframhaldandi setu í stjórn. Eftir sem áður er unnt að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm sólarhringum fyrir aðalfund, sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995, eða til kl. 16:00 laugardaginn 14. mars 2015. Framboð skulu berast á netfangið: stjorn2015@vodafone.is Í samræmi við breyttar starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum nú jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur fulltrúum í tilnefningarnefnd. Framboðsfrestur til tilnefningarnefndar er til kl. 16.00 laugardaginn 14. mars 2015 og ber að skila framboðum á netfangið: tilnefningarnefnd2015@vodafone.is [HUG#1900583] |
|||
|