2014-10-14 11:02:50 CEST

2014-10-14 11:03:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar




Síðast liðið vor samþykkti bæjarstjórn Reykjanesbæjar einróma að fá KPMG og
Harald Líndal Haraldsson hagfræðing og ráðgjafa til að gera úttekt á
fjárhagslegri stöðu Reykjanesbæjar, bæði A-og B hluta. Af ýmsum ástæðum hefur
þessi vinna dregist lítillega en þessa dagana er KPMG að kynna fyrstu
niðurstöður fyrir bæjaryfirvöldum ásamt tillögum að aðgerðum. 

Það er ljóst að staðan er flókin en með samstilltu átaki bæjaryfirvalda,
starfsmanna og bæjarbúa er hægt að snúa henni við innan þeirra tímamarka sem
sveitarfélögum hafa verið gefin. Á næstu 7 árum, eða fyrir árið 2022, á
skuldahlutfall A og B hluta að vera komið undir 150% af tekjum samstæðunnar.
Það er öllum ljóst að verkefnið krefjandi en gerlegt. Reykjanesbær er með öll
sín lán í skilum. 

Nánari verður farið yfir stöðuna á borgarafundi í Stapa miðvikudaginn 29. okt.
2015 kl. 20:00. 

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.