|
|||
![]() |
|||
2017-03-16 18:56:23 CET 2017-03-16 18:56:23 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Skeljungur hf. - Niðurstöður hluthafafundarSkeljungur: Niðurstöður aðalfundar 2017Fimmtudaginn 16. mars 2017 var aðalfundur Skeljungs hf. haldinn á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst kl. 16.00. Tillögur þær sem lágu fyrir fundinum má finna á heimasíðu félagsins: https://www.skeljungur.is/um-skeljung/fjarfestar/. 1. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2016. 2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu Tillaga stjórnar um að enginn arður yrði greiddur út var samþykkt. 3. Breytingar á samþykktum Tillögur stjórnar fólu að meginstefnu í sér tiltekt í texta og tillögu um að ekki yrði lengur varastjórn við félagið. Breytingatillaga kom fram frá Gildi lífeyrissjóði, þess efnis að gengið yrði skemur í styttingu á texta 8. gr. samþykktanna, þannig að texti, um að heimild til handa stjórn til kaupa á eigin hlutafé yrði ekki til lengri tíma en til 18 mánaða hverju sinni, héldi sér. Tillagan var samþykkt. Aðalfundur samþykkti að öðru leyti framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum félagsins. 4. Starfskjarastefna Tillaga að starfskjarastefnu var samþykkt. 5. Þóknun stjórnarmanna, undirnefnda og endurskoðanda Tillaga um kjör stjórnarmanna, undirnefnda og endurskoðanda var samþykkt. 6. Breyting á starfsreglum tilnefningarnefndar Aðalfundur samþykkti tillögu tilnefningarnefndar um breytingu á starfsreglum nefndarinnar. 7. Kjör stjórnarmanna félagsins Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér í aðalstjórn félagsins og voru þau sjálfkjörin: Birna Ósk Einarsdóttir Gunn Ellefsen Jens Meinhard Rasmussen Jón Diðrik Jónsson Trausti Jónsson 8. Kjör tilnefningarnefndar Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í tilnefningarnefnd félagsins og voru þau sjálfkjörin: Katrín S. Óladóttir Trausti Fannar Valsson 9. Kjör endurskoðanda Aðalfundur samþykkti að Reynir Stefán Gylfason, KPMG, yrði endurkjörinn endurskoðandi félagsins. 10. Önnur mál Engin önnur mál voru löglega upp borin á fundinum og var honum slitið kl. 17.11. * * * Eftir aðalfund var haldinn stjórnarfundur, þar sem stjórn skipti með sér verkum. Jón Diðrik Jónsson var kjörinn til áframhaldandi stjórnarformennsku. Til áframhaldandi varaformennsku var kjörinn Trausti Jónsson. Í endurskoðunarnefnd tóku sæti Helena Hilmarsdóttir, Trausti Jónsson og Jens Meinhard Rasmussen. Í starfskjaranefnd tóku sæti Jón Diðrik Jónsson og Birna Ósk Einarsdóttir. Þá var Jón Diðrik Jónsson tilnefndur til setu af hálfu stjórnar í tilnefningarnefnd. Nánari upplýsingar veitir Ingunn Agnes Kro, regluvörður, s: 840-3026, tölvup. regluvordur@skeljungur.is. [] |
|||
|