|
|||
![]() |
|||
2017-03-16 19:27:10 CET 2017-03-16 19:27:10 CET REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - Niðurstöður hluthafafundarTryggingamiðstöðin hf. - Niðurstöður aðalfundar 16. mars 2017.Á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í dag, 16. mars 2017, voru samþykktar tillögur um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, lækkun hlutafjár, heimild til að kaupa eigin hluti, starfskjarastefnu félagsins og þóknun til stjórnar og undirnefnda stjórnar. Á aðalfundinum fór fram kosning stjórnar fyrir næsta starfsár og nýkjörin stjórn hefur skipt með sé verkum. Stjórnin er skipuð sem hér segir: Í aðalstjórn: Örvar Kærnested formaður, Kristín Friðgeirsdóttir varaformaður, Andri Þór Guðmundsson meðstjórnandi, Einar Örn Ólafsson meðstjórnandi og Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn: Bjarki Már Baxter og Bryndís Hrafnkelsdóttir. Nánar um niðurstöður aðalfundarins og upplýsingar um nýkjörna stjórnarmenn vísast til viðhengis sem fylgir tilkynningu þessari. Ársskýrslu félagsins fyrir árið 2016 má finna á heimasíðu félagsins eða á eftrifarandi slóð: http://arsskyrsla.tm.is/ |
|||
|