2017-03-21 10:28:17 CET

2017-03-21 10:28:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Sjóvá - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. sem haldinn var 17. mars 2017 veitti
stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 149.024.599 eigin hluti í
félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins þegar tekið hefur
verið tillit til hlutafjárlækkunar sem samþykkt var á sama fundi. Heimildina
skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða
til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin
stendur í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins, og dótturfélaga
þess, fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Eldri
heimildir til kaupa á eigin hlutum féllu úr gildi við samþykkt heimildar
þessarar. 

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. eiga 8.081.532 eigin hluti eða sem nemur 0,54% af
heildarhlutafé félagsins a.t.t. til áðurnefndrar hlutafjárlækkunar sem samþykkt
var á aðalfundi félagsins 17. mars 2017, en lækkunin verður framkvæmd þegar
heimild Fyrirtækjaskrár og Fjármálaeftirlitsins liggur fyrir. 

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar heimildar
og að teknu tilliti til kaupa á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætluninni sem
lauk þann 11. mars 2017 tekið ákvörðun um frekari kaup á eigin hlutum samkvæmt
endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Endurkaupin munu að hámarki nema 140.943.067 hlutum eða 9,46% af útgefnum
hlutum í félaginu, en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 2.500
milljónir króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2018 en þó
aldrei lengur en til 15. mars 2018 nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt
fyrir þann tíma. 

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd
endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á
hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr.
2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr.
630/2005. 

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup
hvers dags munu að hámarki nema 2.354.728 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali
daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf.
í febrúar 2017. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur
verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim
viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. 

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða
tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara
fram. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 440-2000 eða
fjarfestar@sjova.is