2017-03-21 18:00:01 CET

2017-03-21 18:00:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Aðlögunaráætlun Reykjanesbæjar 2017 - 2022


Aðlögunaráætlun Reykjanesbæjar til ársins 2022 er lögð fram  á fundi
bæjarstjórnar í dag þriðjudaginn 21. mars 2017 kl. 17:00 og verður þar rædd
fyrra sinni. 

Samkvæmt aðlögunaráætlun mun skuldaviðmið samstæðu Reykjanesbæjar verða 149% í
lok tímabilsins sem aðlögunaráætlunin tekur til.  Aðlögunaráætlunin er, til
viðbótar þeim forsendum sem er að finna í áætluninni sjálfri, bundin þeirri
forsendu að samkomulag um endurskipulagningu efnahags og endurfjármögnun skulda
Reykjanesbæjar og samstæðu takist en viðræður við kröfuhafa standa enn yfir. 

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.