2013-12-19 11:37:00 CET

2013-12-19 11:38:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Marel breikkar framkvæmdastjórn félagsins


Framkvæmdastjórn Marel hefur verið breikkuð og er nú skipuð fjölbreyttum hópi
reynslumikilla yfirmanna úr röðum félagsins. Þessar breytingar styrkja
stjórnina í að framkvæma stefnu félagsins og auðvelda henni að ná
langtímamarkmiðum sínum. 

Nýir liðsmenn framkvæmdastjórnarinnar eru:

Anton de Weerd, yfirmaður iðnaðarseturs kjúklings
Jón Birgir Gunnarsson, yfirmaður iðnaðarseturs fisks
Gerrit den Bok, yfirmaður iðnaðarseturs frekari vinnslu
David Wilson, yfirmaður iðnaðarseturs kjöts
Pétur Guðjónsson, yfirmaður alþjóðlegar sölu- og þjónustu
Paul van Warmerdam, yfirmaður alþjóðlegrar framleiðslu- og aðfangastýringar
Davíð Freyr Oddsson, yfirmaður mannauðsmála

Allir lykiliðnaðir Marel eiga nú fulltrúa í framkvæmdastjórninni sem skerpir á
markaðs- og nýsköpunardrifnum áherslum félagsins. Skipan yfirmanns alþjóðlegrar
sölu og þjónustu í stjórnina endurspeglar mikilvægi þeirra þátta í starfsemi
Marel sem stuðlar að samkeppnisforskoti félagsins á alþjóðavísu. 

Yfirmenn alþjóðlegrar framleiðslu- og aðfangastýringar og mannauðsmála eiga nú
sæti í stjórninni til að auka rekstarhagkvæmni félagsins. Á næstu mánuðum mun
nýr yfirmaður rannsókna og þróunar bætast við sem mun bæta forgangsröðun
nýsköpunar í gegnum alla starfsemi félagsins. 

Þessir aðilar skipa nú í framkvæmdastjórn Marel ásamt Árna Oddi Þórðarsyni
forstjóra, Erik Kaman fjármálastjóra og Sigsteini Grétarssyni
aðstoðarforstjóra. 

Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel:

“Breikkun framkvæmdastjórnarinnar auðveldar Marel að nýta sér betur þau
tækifæri sem markaðurinn býður upp á og styður félagið í að ná
langtímamarkmiðum sínum.Þessi breyting leiðir til þess að skipulag Marel verður
skilvirkara og gerir okkur kleift að miðla því sem best er gert á milli
mismunandi eininga innan Marel. Framkvæmdastjórnin er skipuð reynslumiklum
leiðtogum með fjölbreyttan alþjóðlegan bakgrunn og mikla sérþekkingu hver á
sínu sviði. Að auki bindumst við Marel sterkum böndum og höfum ástríðu fyrir
framtíð félagsins. 


Frekari upplýsingar veita:
Linda Jónsdóttir framkvæmdastjóri fjárstýringar og fjárfestatengsla. s: 563
-8464 og 825-8464 
Auðbjörg Ólafsdóttir sérfræðingur í Fjárfestatengslum  s: (+354) 563 8626/
Mobile: (+354) 853 8626. 

Nánari upplýsingar um nýja framkvæmdastjórn á www. Marel.com/et