|
|||
2014-06-24 15:30:53 CEST 2014-06-24 15:31:53 CEST REGULATED INFORMATION HB Grandi hf. - FyrirtækjafréttirHB Grandi – Ákveðið að ganga til samninga um smíði ísfisktogaraStjórn HB Granda hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við tyrknesku skipasmíðastöðina Celiktrans Deniz Insaat Ltd. um smíði á þrem ísfisktogurum á grundvelli tilboðs frá skipasmíðastöðinni. Heildarsamningsupphæðin mun liggja nærri 6,8 milljörðum ÍKR (rúmum 44 milljónum EUR). Áætlað er að gangi samningar eftir muni fyrri tvö skipin verða afhent á árinu 2016 en það þriðja árið 2017. Fyrir er tyrkneska skipasmíðastöðin með tvö uppsjávarskip í smíðum fyrir HB Granda. Nánari upplýsingar gefur Vilhjálmur Vilhjálmsson í síma 550-1000 Sjá einnig frétt á heimasíðu félagsins þann 13.3.2014 þar sem tilkynnt er að félagið hugi að endurnýjun ísfisktogara. |
|||
|