|
|||
2024-05-06 17:39:07 CEST 2024-05-06 17:39:11 CEST REGULATED INFORMATION Nova Klúbburinn hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024Áframhaldandi fjölgun viðskiptavina í harðri samkeppni Helstu niðurstöður á fyrsta ársfjórðungi:
Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova: ”Árið 2024 byrjar af miklum krafti en einnig með áskorunum. Með gleðina og metnaðinn að vopni hefur Nova liðið tekist á við þessar áskoranir sem samhent lið. Það hefur skilað því að fjölgað hefur í viðskiptavinahópi Nova þrátt fyrir harða samkeppni og krefjandi stöðu í íslensku efnahagslífi. Mikil krafa er í samfélaginu um að ná stöðugleika, hlúa að innviðum og halda áfram uppbygginu þeirra, á sama tíma og kostnaðarhækkanir hafa verið áskorun og þrýst á þörf fyrir verðhækkanir. Þjónustutekjur hafa vaxið en vörusala heldur áfram að dragast saman þar sem viðskiptavinir eiga símtækin sín lengur en áður, en það hefur þó lítil áhrif á rekstrarniðurstöðu. Framlegð af vörusölu er almennt lág ef miðað er við þjónustutekjur. Aftur á móti hafa þjónustutekjur hækkað milli ára sem vegur upp lækkun á tekjum af vörusölu. Stækkun þjónustusvæðis á síðasta ári með nýjum samstarfsaðilum hefur fengið góðar viðtökur sem og sérlausnir til stórnotenda á fyrirtækjamarkaði. Samkeppnin er mikil og öflug og það gerir leikinn skemtilegan. En stefna okkar er að öll sem eru í viðskiptum hjá Nova fái bestu kjörin og það á við bæði um nýja viðskiptavini sem og þá sem hafa verið með okkur lengi. Skýr stefna félagsins um að halda besta netinu, bestu þjónustunni, og ávallt færa viðskiptavinum mesta virðið hefur skilað sterkri stöðu og miklum tækifærum fyrir frekari vöxt. Þetta hefur skilað sér í að okkar viðskiptavinir eru þeir ánægðustu ár eftir ár. Markmið okkar er að halda áfram að auka ánægju viðskiptavina okkar en hún og tryggð okkar frábæra viðskiptavinahóps eru alltaf okkar verðmætasta eign.” Viðhengi |
|||
|