|
|||
![]() |
|||
2015-02-26 15:19:40 CET 2015-02-26 15:20:41 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - ÁrsreikningurÁrsreikningur fagfjárfestasjóðsins Arion Bank Mortgages Institutional Investor Fund (ABMIIF) vegna ársins 2014Fagfjárfestasjóðurinn ABMIIF sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. -- Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 3.532 millj. Kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum. -- Hrein eign sjóðsins í árslok 2014 nam 46.982 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahagi hans 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2014, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um ársreikning ABMIIF veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464. |
|||
|