2012-08-31 18:18:49 CEST

2012-08-31 18:19:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Reitir II - Ársreikningur

Afkoma Reita II á fyrri árshelmingi 2012


Tap Reita II ehf. á fyrri árshelmingi ársins 2012 nam 3.001 milljón króna
samanborið við 572 milljóna króna tap á sama tímabili árið áður.
Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu batnaði nokkuð frá fyrra ári og nam 576
milljónum króna samanborið við 530 milljónir króna árið áður. 

Stærstan hluta taps félagsins á tímabilinu má rekja til endurmats á
fjárfestingareignum félagsins en matsbreyting Reita II á fyrstu sex mánuðum
ársins var neikvæð um 2.381 milljón krónur. Endurmat fjárfestingareigna kemur í
kjölfar skráningar fasteignafélagsins Regins í kauphöll í sumar. Með
skráningunni var sett viðmið varðandi verðlagningu fasteignafélaga hér á landi
en undanfarin ár hefur markaðurinn verið grunnur og lítið til af upplýsingum
eins og bent hefur verið á í uppgjörum félagsins. 

Áfram er gert ráð fyrir bata í rekstri félagsins en líkt og fyrr má vænta
neikvæðrar afkomu vegna fjármagnsliða. Móðurfélag Reita II, Reitir
fasteignafélag hf., hyggur á skráningu í kauphöll á árinu 2012 og í aðdraganda
hennar er unnið að endurfjármögnun skulda samstæðunnar, að skuldum Reita II
meðtöldum. 

Í lok júní 2012 var eigið fé Reita II neikvætt um 1.099 milljónir króna.
Væntingar stjórnar og stjórnenda eru þær að eigið fé félagsins verði jákvætt í
kjölfar endurfjármögnunar og sölu á nýju hlutafé í móðurfélaginu í tengslum við
skráningu í kauphöll. 

Lykiltölur:

  -- Heildareignir námu 18.470 milljónum króna þann 30. júní 2012.
  -- Eigið fé félagsins nam -1.099 milljónum króna á sama tíma.
  -- Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 826 milljónum króna samanborið við
     777 milljónir króna á sama tíma árið áður.



Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 7
dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags. Upplýsingar um afkomu
móðurfélagsins, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is. 



Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita

Sími 575 9000

einar@reitir.is