2016-08-15 16:12:56 CEST

2016-08-15 16:12:56 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Tämä tiedote on korjattu Klikkaa nähdäksesi korjattu tiedote

Islanti
Landsnet hf. - Ársreikningur

Landsnet - Birting á árshlutareikningi 30.06.16


Styrking krónunnar leiðir til taps á fyrrihluta ársins

Árshlutareikningurinn er nú birtur í fyrsta skiptið í bandaríkjadölum (USD) sem
er starfrækslugjaldmiðill Landsnets frá ársbyrjun 2016. Fjármögnun félagsins er
að mestu í íslenskum krónum og hefur þróun USD gagnvart henni verið óhagstæð
frá áramótum. 

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 27,6 m. USD ( 3.265,7 millj.kr
) samanborið 28,6 m. USD (3.379,7 millj.kr) árið áður og er daglegur rekstur
félagsins stöðugur. Tap Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 2,6 m. USD
(312,7 millj.kr) fyrstu 6 mánuði ársins 2016 samanborið við 11,8 m. USD
(1.393,5 millj.kr) hagnað á sama tímabili árið 2015. [1] 

Heildareignir félagsins í árslok námu 802,9 m. USD (94.964,8 millj.kr)
samanborið við 794,6 m. USD (93.986,5 millj.kr) í lok árs 2015. Heildarskuldir
námu í árslok 484,7 m. USD (57.327,4 millj.kr) samanborið við 470,9 m. USD
(55.692,6 millj.kr) í lok árs 2015. 

Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 39,6% samanborið við 40,7% í lok ársins
2015. Eigið fé í lok tímabilsins nam 318,2 m. USD (37.637,4 millj.kr)
samanborið við 323,8 m. USD (38.293,9 millj.kr) í lok árs 2015. 

Lausafjárstaða Landsnets er sterk, handbært fé í lok júní nam 67,0 m. USD
(7.921,7 millj.kr) og handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 26,8 m. USD
(3.164,2 millj. kr). 

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri:

„Við erum í fyrsta skipti að birta reikninginn í bandaríkjadölum og skýrist tap
tímabilsins að mestu af styrkingu krónunnar frá áramótum og sjáum við áhrif
þess í fjármagnsliðum.  Rekstarkostnaður á milli ára hækkar og skýrist það m.a
af launahækkunum byggðum á SALEK samkomulaginu.  Unnið er að endurfjármögnun og
er markmiðið okkar að aðlaga fjármögnunina að USD og breyta afborgunarferil
lána. Það er ánægjulegt að sjá að  árshlutareikningurinn sýnir að rekstur
Landsnets er stöðugur og eiginfjárstaða félagsins er sterk .“ 

Hér er hægt að nálgast árshlutareikninginn.

Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is