2013-11-01 16:25:38 CET

2013-11-01 16:26:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Árni Oddur Þórðarsson er nýr forstjóri Marel


Stjórn Marel hefur ráðið Árna Odd Þórðarson sem forstjóra Marel.  Samhliða urðu
þær breytingar  á stjórn Marel að Ásthildur Margrét Otharsdóttir verður
stjórnarformaður og Arnar Þór Másson verður varaformaður stjórnar. 



Ásthildur M. Otharsdottir stjórnarformaður Marel:

 „Við erum lánsöm að fá Árna Odd til að veita Marel forystu. Hann hefur gegnt
lykilhlutverki í stefnumótun félagsins um langa hríð eftir að hafa verið
stjórnarformaður undanfarin 8 ár. Þá hefur hann víðtæka alþjóðlega
viðskiptareynslu og þekkir félagið og markaði þess afar vel.“ 

Árni Oddur Þórðarsson forstjóri Marel:

 „Ég hlakka mikið til að vinna náið með því frábæra fólki sem Marel hefur á að
skipa. Starfsmenn Marel hafa byggt upp alþjóðlegt þjónustunet í yfir 30 löndum
og þeir kappkosta að viðhalda leiðtogastöðu sinni  á markaði með nýsköpun að
leiðarljósi. Vaxtarsaga félagsins sýnir glöggt þann góða árangur sem náðst
hefur og möguleikarnir á að skapa aukin verðmæti fyrir viðskiptavini okkar
jafnt sem hluthafa eru miklir. Næstu skref eru að framkvæma stefnu Marel sem
byggir á grundvallar styrkleikum félagsins“, segir Árni Oddur Þórðarson,
forstjóri Marel. 


Theo Hoen, sem lætur af störfum forstjóra, hefur starfað hjá Marel og Stork
Food Systems frá árinu 1986, þar af sem forstjóri frá því snemma árs 2009. 



„Marel hefur síðustu ár styrkt stöðu sína og er í fararbroddi á heimsvísu í
þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og
kjúklingi. Theo Hoen hefur gegnt lykilhlutverki í sögu Marel og Stork Food
Systems síðustu 28 árin. Fyrir hönd stjórnar Marel þakka ég Theo fyrir hans
framlag til vaxtar og velgengni félagsins“, segir Ásthildur Otharsdóttir,
stjórnarformaður Marel. 



Árni Oddur Þórðarsson hefur umfangsmikla alþjóðlega viðskiptareynslu. Hann
hefur verið í stjórn Marel frá árinu 2005, lengst af sem stjórnarformaður. Árni
Oddur er með MBA gráðu frá IMD viðskiptaháskólanu í Sviss og er með Cand. Oecon
gráðu í viðskiptastjórnun frá Háskóla Íslands. 

Frekari upplýsingar veitir:

Linda Jónsdóttir framkvæmdastjóri fjárstýringar og fjárfestatengsla. s: 563
-8464 og 825-8464