|
|||
2013-10-07 19:08:18 CEST 2013-10-07 19:09:19 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur september 2013Í september flutti félagið yfir 215 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 9% fleiri en í september á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og sætanýting var 78,1% samanborið við 81,1% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15,4% og voru þeir 51% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í september. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í september og fækkaði um 13% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 14% samanborið við september 2012. Sætanýting nam 71,2% og jókst um 1,2 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Fjöldi framboðinna gistinótta á hótelum félagsins jókst um 3% milli ára. Herbergjanýting var 69,8% samanborið við 76,5% í september í fyrra. MILLILANDAFLUG SEP 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 215.205 9% 1.788.903 12% Sætanýting 78,1% -3,0 %-stig 80,2% -1,4 %-stig Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 819,6 15% 6.496,3 17% INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG SEP 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 24.970 -13% 239.774 -11% Sætanýting 71,2% 1,2 %-stig 71,6% 3,1 %-stig Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 13,1 -14% 123,9 -14% LEIGUFLUG SEP 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ------------------------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 96,7% -3,3 %-stig 91,1% -1,2 %-stig Seldir blokktímar 2.389 -7% 21.491 -10% FRAKTFLUTNINGAR SEP 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ------------------------------------------------------------------------------- Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 18.940 9% 152.325 10% Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.653 9% 70.115 6% HÓTEL SEP 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ------------------------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 22.956 3% 246.523 9% Seldar gistinætur 16.025 -6% 183.084 7% Herbergjanýting 69,8% -6,7 %-stig 74,3% -1,0 %-stig Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|