2011-05-11 18:30:00 CEST

2011-05-11 18:30:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Mosfellsbær - Ársreikningur

Rekstrarafgangur hjá Mosfellsbæ fyrir fjármagnsliði


Ársreikningur Mosfellsbæjar 2010 í samræmi við fjárhagsáætlun

Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2010 var kynntur á 558. fundi
bæjarstjórnar miðvikudaginn 11. maí 2011 og honum vísað til seinni umræðu sem
er fyrirhuguð er 25. maí. 

Rekstur sveitarfélagsins á árinu 2010 er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.
Rekstrarafgangur af samstæðunni að undanskildum fjármagnsgjöldum var 206
milljónir króna. Fjármagnsgjöld voru um 415 milljónir og er því er
rekstrarniðurstaða neikvæð sem nemur 205 milljónum á árinu 2010. Veltufé frá
rekstri er jákvætt um 182 milljónir króna. Framlegð er 453 milljónir sem nemur
13,2% af skatttekjum. 

Bæjarstjórn ákvað í kjölfar efnahagshruns að milda áhrif efnahagsþrenginganna á
íbúa sveitarfélagsins og dreifa þeim á þriggja ára tímabil. Lækkun skulda á
árunum í aðdraganda hrunsins gera þetta jafnframt kleift. Ekki voru
umtalsverðar hækkanir á gjaldskrám og útsvar var níu prósentustigum undir
leyfilegu hámarki á árinu 2010. Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir að halli
ársins 2010 verði unninn upp og í áætlun ársins 2011 er gert ráð fyrir
hallalausum rekstri. 

Rekstur stofnana Mosfellsbæjar er með miklum ágætum. Hagrætt var í rekstri til
að mæta lægri tekjum sem og hækkun kostnaðar svo komast mætti hjá því að hækka
gjaldskrár vegna þjónustu og leggja þannig meiri byrðar á fjölskyldur.
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta stofnana er því ásættanleg fyrir
fjármagnsliði. 

Uppbyggingu í sveitarfélaginu var fram haldið á árinu 2010 þrátt fyrir
krefjandi umhverfi. Nýr skóli var tekinn í notkun og gerðir voru samningar við
ríkisvaldið um byggingu hjúkrunarheimilis og framhaldsskóla í Mosfellsbæ.
Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á árinu 2011. Fjármögnun þeirra
verkefna er tryggð á hagstæðum kjörum og einnig hefur Mosfellsbær unnið
markvisst að því að lækka fjármagnskostnað með endurfjármögnum lána á
hagstæðari kjörum. 

Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins nema samtals um 8,1 milljörðum en
bókfært verðmæti eigna er 11,7 milljarðar og er eigið fé því 3,6 milljarðar.