2014-11-07 11:51:07 CET

2014-11-07 11:52:08 CET


Islandic
Garðabær - Fjárhagsdagatal

Traust fjárhagsstaða Garðabæjar


Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 og árin 2016 - 2018 var lögð fram til
fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær fimmtudaginn 6. nóvember. 
Heildartekjur Garðabæjar á árinu 2015 eru áætlaðar 10.992 millj.kr., útgjöld án
fjármagnsliða eru áætluð 10.246 millj.kr. og fjármagnsgjöld eru áætluð 573
millj.kr. 

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða ársins 2015 verði jákvæð
um 172 milljónir króna. Álögum á íbúa verður stillt í hóf og gert er ráð fyrir
að álagningarhlutfall útsvars verði óbreytt eða  13,66% sem er með því lægsta
sem gerist hjá stærri sveitarfélögum.   Við framlagningu frumvarpsins kynnti
bæjarstjóri hugmyndir meirihlutans um lækkun fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði. 

Allar kennitölur í rekstri bera vott um trausta fjárhagsstöðu.

Áætlunin gerir ráð fyrir að skuldahlutfall í árslok 2015 verði 97,5% sem sýnir
að fjárhagsstaða Garðabæjar er sterk og staðfestir að áætlanir sem gerðar voru
við sameiningu Garðabæjar og Álftaness hafa gengið eftir.  Skuldahlutfall
sveitarfélagsins mun lækka enn frekar á áætlunartímabilinu og verður 94,3% í
árslok 2018. Viðmiðunarmörkin sem skilgreind eru í sveitarstjórnarlögum segja
að skuldahlutfallið megi ekki vera hærra en 150%. 

Veltufé frá rekstri er áætlað 1.272 millj.kr. eða 11,6% af heildartekjum.

Hófleg íbúafjölgun hefur verið í Garðabæ undanfarin ár og samhliða hafa fylgt
auknar skatttekjur.  Stofnanir bæjarins hafa á sama tíma getað veitt góða
grunnþjónustu án þess að ráðist hafi verið í umfangsmiklar og kostnaðarsamar
fjárfestingar til að mæta íbúafjölguninni að undanskildu því að nýr leikskóli
var byggður í Akrahverfi.  Auknar tekjur hafa verið nýttar til að bæta
þjónustuna og er í því sambandi bent á   fjölnota íþróttaaðstöðu í
Sjálandsskóla, nýtt fimleikahús, endurnýjun gervigrasvallar og bættri aðstöðu á
íþróttavöllum. 

Á árinu 2015 er gert ráð fyrir að verja 1.330 millj.kr. til framkvæmda.  Helstu
framkvæmdir eru tengdar uppbyggingu skólamannvirkja en áætlað er að verja 300
millj.kr. til að ljúka við 1.000 m2 viðbyggingu Hofsstaðaskóla og 200 millj.kr.
til að hefja framkvæmdir við 1. áfanga Urriðaholtsskóla en gert er ráð fyrir að
hverfið muni byggjast hratt upp á næstu árum. 

Í áætluninni eru fjárveitingar samtals að fjárhæð um 300 millj.kr. til
framkvæmda við gatnagerð, gangstíga og til úrbóta í hljóðvistarmálum. 

Á áætlunartímabilinu 2015 -2018 er gert ráð fyrir að Garðabær verji til
framkvæmda 3.650 millj.kr. þar sem m.a. er stefnt að því að hefja framkvæmdir
við byggingu fjölnota íþróttahúss. 

Síðari umræða og afgreiðsla bæjarstjórnar Garðabæjar um fjárhagsáætlunina
verður 4. desember nk. 



Nánari upplýsingar veitir:

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.  s:  5258511/820 8541