2008-05-27 21:11:51 CEST

2008-05-27 21:12:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Alfesca hf. - Fyrirtækjafréttir

Umtalsverð fjárfesting í Alfesca


Stjórn Alfesca er það sönn ánægja að tilkynna að undirrituð hefur verið
viljayfirlýsing um að erlendur fjárfestir muni fjárfesta fyrir 48.3 milljónir
evra í nýju hlutafé í félaginu.  Þessi fjárfesting innsiglar þær nánu og
uppbyggilegu viðræður sem hafa átt sér stað á milli Alfesca annars vegar og
hins væntanlega hluthafa hins vegar um nokkra hríð. 

Vilji aðila stendur til að fjárfestingin verði með þeim hætti að keypt verða í
áskrift 850,000,000 nýrra hluta sem hver er að nafnverði ein íslensk króna, og
er áskriftarverðið á genginu 6,45 fyrir hvern hlut, sem felur í sér 6,9%
afslátt miðað við gengi hluta í Alfesca við lok viðskipta föstudaginn 23. maí
2008. Um er að ræða, ef til kemur, 12,6% af heildarhlutafé Alfesca. 

Í kjölfar þess að nýlega voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um
tekjuskatt, sem m.a. fela það í sér við ákveðnar aðstæður að felld er niður
skattlagning söluhagnaðar hlutabréfa, þá mun fjárfestirinn hafa uppi áform um
að stofna eignarhaldsfélag hér á landi sem mun halda utan um hlutafjáreignina í
Alfesca. 

Alfesca býr vel að því að hafa sterkan efnahagsreikning og var
eiginfjárhlutfall félagsins 47,4% 31. mars sl. Þegar við bætist nýtt fjármagn
með þessu nýja hlutafé er ljóst að Alfesca er vel í stakk búið til að þróa
félagið áfram og skoða tækifæri til að taka yfir önnur fyrirtæki, þrátt fyrir
að aðstæður á markaði séu almennt erfiðar. 

Vonir standa til að gengið verði frá þessari fjárfestingu innan fárra vikna.
Nánari upplýsingar verða gefnar síðar. 


Fyrirspurnum svarar: 

Antony Hovanessian	, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar,	sími +354 477 7000,
ah@alfesca.com