|
|||
![]() |
|||
2015-08-20 21:26:33 CEST 2015-08-20 21:27:34 CEST REGULATED INFORMATION Reitir II ehf. - ÁrsreikningurAfkoma Reita II ehf. á fyrri árshelmingi 2015Hagnaður Reita II ehf. á fyrri helmingi ársins 2015 nam 776 milljónum króna samanborið við 63 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 628 milljónum króna samanborið við 598 milljónir króna árið áður. Matsbreyting fjárfestingareigna Reita II á fyrstu sex mánuðum ársins var 369 milljónir en hún var 293 milljónir króna á sama tíma árið áður. Breytingu á afkomu félagsins má að miklu leyti rekja til lægri fjármagskostnaðar í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar samstæðunnar. Hrein fjármagnsgjöld voru 33 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2015 en voru 816 milljónir á sama tímabili árið 2014. Í lok júní 2015 var eigið fé Reita II 20.118 milljónir króna en það var 19.342 milljónir króna í árslok 2014. Lykiltölur: -- Heildareignir námu 21.801 milljónum króna þann 30. júní 2015. -- Eigið fé félagsins nam 20.118 milljónum króna á sama tíma. -- Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 903 milljónum króna samanborið við 867 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Reitir II ehf. er eitt af 10 dótturfélögum í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Upplýsingar um afkomu móðurfélagsins, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson fjármálastjóri í síma 575 9000 eða 669 4416 (einar@reitir.is). |
|||
|