|
|||
2022-11-25 17:47:11 CET 2022-11-25 17:47:11 CET Hampiðjan hf. - Niðurstöður hluthafafundaHampiðjan hf. - Niðurstöður hluthafafundar 25. nóvember 2022.Á hluthafafundi Hampiðjunnar, sem fram fór í dag, var eftirfarandi tillaga um heimild til hækkunar hlutafjár samþykkt: „Hluthafafundur Hampiðjunnar hf. haldinn 25.11.2022 samþykkir að veita stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé félagsins að nafnvirði um allt að kr. 145.000.000, úr kr. 500.000.000 að nafnvirði í allt að kr. 645.000.000 að nafnvirði, svo sem nánar greinir hér að neðan:
Hluthafar falla frá forgangsrétti til áskriftar á hinu nýja hlutafé. Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi, þó skulu hinir nýju hlutir sem tilkomnir eru vegna greiðslu fyrir hlutaféð í Holding Cage I AS njóta arðsréttinda og forgangsréttar til áskriftar að nýjum hlutum í félaginu, til jafns við hluthafa, frá þeim degi sem kaupsamningur sá sem vísað er til í a-lið 1. mgr. hér að framan er orðinn skuldbindandi. Heimildir þessar skal stjórnin nýta innan 18 mánaða frá samþykkt hennar. Stjórn félagsins er heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins í tengslum við nýtingu heimildarinnar.” Fleira gerðist ekki. |
|||
|