|
|||
![]() |
|||
2013-05-30 11:47:08 CEST 2013-05-30 11:48:09 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirTilkynning frá Íbúðalánasjóði og velferðarráðuneytinuÍbúðalánasjóður nýtur fullrar ríkisábyrgðar Í viðtali Bloomberg við Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, 29. maí, er haft eftir ráðherranum að það sé sameiginlegt verkefni allra hlutaðeigandi aðila að finna lausn á vanda Íbúðalánasjóðs. Ljóst er að stjórnvöld þurfa að taka á vanda Íbúðalánasjóðs og málefni hans eru til skoðunar en engar ákvarðanir hafa verið teknar í því efni. Mikilvægt er að árétta að Íbúðalánasjóður nýtur fullrar ríkisábyrgðar. Það liggur ljóst fyrir að skilmálum skuldabréfa verður ekki breytt nema með samkomulagi við eigendur bréfanna. |
|||
|