2008-12-10 15:47:26 CET

2008-12-10 15:48:26 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs


Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 10 1210 með hollensku sölufyrirkomulagi fór
fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 14:00 í dag. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

Alls bárust 50 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 18.976 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 11.476 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,17 (14,25%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu, eða 1.148 m.kr., á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á
uppgjörsdegi útboðsins. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu
útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur
fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1).