2013-04-04 14:36:45 CEST

2013-04-04 14:37:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Akureyrarbær - Ársreikningur

Ársreikningar Akureyrarbæjar 2012


Rekstarhalli en gott sjóðsstreymi og traustur fjárhagur

Rekstur Akureyrarbæjar skilaði góðu sjóðsstreymi og fjárhagurinn er traustur
þrátt fyrir að árið sé gert upp með halla. Reiknaðir liðir lita afkomuna.
Ársreikningar fyrir árið 2012 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Samkvæmt
sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í
sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 9. og 23.
apríl nk. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum.  Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar,
Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.  Fyrirtækin
eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar
Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar,
Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf,
Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og
Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar 

Rekstur Akureyrarbæjar gekk þokkalega á árinu og er heildarniðurstaða ársins í
meginatriðum eins og fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir, utan reiknaðra
liða. Reiknaðir liðir vegna aukinnar áfallinnar lífeyrisskuldbindingar hafði þó
veruleg áhrif á niðurstöðuna.Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var neikvæð um 
199,7 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir 62,9 milljóna króna
hagnaði á árinu. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri
2.155,3 millj. kr. sem er 92 millj. kr. hærra en áætlun hafði gert ráð fyrir og
267 millj. kr. hærri en árið áður.  Handbært fé frá rekstri nam 2.016,1 millj.
kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 2.456,6 millj. kr.
Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 443,2 millj. kr. Afborgun langtímalána nam
3.944,7 millj. kr. en ný langtímalán námu 4.326,5 millj. kr. Hækkun á handbæru
fé á árinu nam 312,6 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok
2.011,6 millj. kr. 

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 7.303.917
þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.527. Laun og launatengd
gjöld sveitarfélagsins, án aukinna lífeyrsiskuldbindinga,  í hlutfalli við
rekstrartekjur þess voru 56% en 59,4% með aukningu áfallinna
lífeyrisskuldbindinga. Gjaldfærð lífeyrisskuldbinding á árinu nam 491,5 millj.
kr. Annar rekstrarkostnaður var 30,3% af rekstrartekjum. Skatttekjur
sveitarfélagsins voru 525 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 969 þús. kr.
á hvern íbúa. Árið 2011 voru skatttekjurnar 496 þús. kr. á hvern íbúa og
heildartekjurnar 907 þús kr. 

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á  38.882,4
millj. kr., þar af eru veltufjármunir 4.340,8 millj. kr. Skuldir
sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi
22.555,7 millj. kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.058,2millj. kr. Fjárhagur
Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar
með fjármálum sveitarfélaga  124% en var 130% árið áður. 

Veltufjárhlutfallið er 1,28 í árslok en var 1,24 árið áður. Bókfært eigið fé
nemur 14.570,6 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall er 37,0% af
heildarfjármagni en var 0,39% árið áður. 


Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, Fjármálastjóri, í síma 460 1000.