2011-01-20 11:00:10 CET

2011-01-20 11:01:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

Þrotabú Roku ehf. höfðar mál á hendur Nýherja hf.



Fyrir hönd Nýherja hf., kt. 530292-2079, Borgarúni 37, 105 Reykjavík, er með
vísan til 122., sbr. 120. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, sbr.
ákvæði reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik og ákvæði
2. gr. reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga, Kauphöll Íslands hér með send
svofelld tilkynning: 

Með kaupsamningi dagsettum 2. janúar 2009 tók Nýherji hf. við rekstri
félaganna, Skyggnis hf., TMS Origo ehf., EMR ehf., Vigor ehf., Viðju ehf., TM
Software ITP ehf. og Theriak Medication Management ehf., úr höndum dótturfélags
síns, Roku ehf. (áður TM Software ehf.). Jafnframt keypti Nýherji fasteignir og
lausafé dótturfélagsins. 

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness þann 17. mars 2010 var bú Roku ehf. tekið
til gjaldþrotaskipta að kröfu Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka hf. Sá
úrskurður var staðfestur með dómi Hæstaréttar uppkveðnum 7. maí 2010 í máli nr.
205/2010. 

Miðvikudaginn 19. janúar sl. höfðaði þrotabú Roku ehf. mál á hendur Nýherja hf.
til riftunar á ráðstöfun ofangreindra eigna samkvæmt kaupsamningum aðila og til
greiðslu tjónsbóta. 

Nýherji hf. hafnar kröfum þrotabúsins, sem félagið telur ekki á rökum reistar.
Félagið telur sig hafa greitt rétt verð fyrir eignirnar og að jafnræðis allra
kröfuhafa þrotabúsins hafi verið gætt. Félagið mun því grípa til varna gegn
kröfum þrotabúsins. 

Nýherji hf. á umtalsverðar kröfur á hendur Roku ehf. sem félagið lýsti við
gjaldþrotaskiptin. Óvissa ríkir um samþykki krafna í þrotabúið en fari svo
ólíklega að dómstólar samþykki bótakröfur þrotabúsins mun hugsanleg
bótagreiðsla væntanlega renna að verulegu leyti aftur til Nýherja hf. og draga
þannig úr fjárhagslegri áhættu félagsins af málshöfðun þrotabúsins. 






         Nánari upplýsingar veitir:
         Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja,
         s: 893-3630,
         thordur.sverrisson@nyherji.is