|
|||
2012-10-01 18:02:52 CEST 2012-10-01 18:03:53 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiSamkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 5.september sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 3. október nk. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki „RIKS 33 0321“ yrði birt í lok dags 1. október. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 109,154248 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 5. október 2012 (ávöxtunarkrafa 2,65%)1 Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100). 1Hreint verð (e. clean price) er 105,5. |
|||
|