2014-08-14 15:03:47 CEST

2014-08-14 15:04:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Á tímabilinu 1.-13. ágúst keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 500.000 eigin
hluti fyrir 12,2 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími     Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð   Hlutir í eigu TM eftir  
g                    hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
 6.8.2014  12:49    500.000       24,30     12.150.00          9.500.000        
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals             500.000                 12.150.00                           
                                                0                               
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 9.500.000 hluti í félaginu sem samsvarar 45,2% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 248,4 milljónum króna. TM á nú samtals 1,25%
af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is