2008-05-30 12:18:03 CEST

2008-05-30 12:19:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Norðurþing - Ársreikningur

Leiðrétting - Ársreikningur 2007 - Frétt birt 2008.05.30:10:37:07


Leiðrétting: Fréttatilkynninguna vantaði sem viðhengi.


Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2007

Jákvæð rekstrarafkoma og lækkun skulda

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2007 var lagður fram til kynningar í
sveitarstjórn 21. apríl 2008. Seinni umræða sveitarstjórnar fór fram 20. maí og
var ársreikningurinn samþykktur samhljóða. 

Sameining Raufarhafnar-, Öxarfjarðar- og Kelduneshrepps svo og Húsavíkurbæjar
tók gildi 11. júní 2006 og fékk sveitarfélagið nafnið Norðurþing. Árið 2007 var
því fyrsta heila rekstrarár Norðurþings. Íbúafjöldi sveitarfélagsins í árslok
2007 var 2970.
Rekstrarniðurstaða samstæðu Norðurþings var jákvæð um 89,4 mkr. Rekstrartekjur
voru 2.371,4 mkr. og rekstrargjöld 1.991,6 mkr. en þar af nam reiknuð hækkun
lífeyrisskuldbindinga 61,9 mkr. Veltufé frá rekstri var 287,8 mkr. eða 12,1% af
tekjum og handbært fé frá rekstri var 254,2 mkr. Peningalegar eignir í árslok
voru 1.226,6 mkr. og skuldir og skuldbindingar samtals 4.183,9 mkr. en þar af
voru lífeyrisskuldbindingar 950,5 mkr. Skuldir umfram peningalegar eignir voru
því 2.957,3 mkr. samanborið við 3.418,9 mkr. í árslok 2006. Eigið fé í árslok
var 1.599,0 mkr. og eiginfjárhlutfallið 27,6% samanborið við 1.307,9 mkr. og
22,8% í árslok 2006. 

Gert er ráð fyrir að reksturinn verði með svipuðu sniði á árinu 2008.

Ársreikningurinn í heild sinni verður birtur á heimasíðu Norðurþings.

Nánari upplýsingar veita Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri, og Guðbjartur
Ellert Jónsson fjármálastjóri, í síma 464 6100.