2024-05-27 10:45:00 CEST

2024-05-27 10:45:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. mars 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.

Í viku 21 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 549.298 eigin hluti að kaupverði alls kr. 54.761.423 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
21.5.202414.02:0930099,4029.82052.865.047
22.5.202409:38:0149.500100,004.950.00052.914.547
22.5.202410:15:5646.00099,604.581.60052.960.547
22.5.202412:46:48100.000100,0010.000.00053.060.547
22.5.202414:42:2642.850100,004.285.00053.103.397
22.5.202414:42:2611.150100,001.115.00053.114.547
23.5.202410:24:592.61099,60259.95653.117.157
23.5.202410:57:241.26599,60125.99453.118.422
23.5.202411:29:044.16099,60414.33653.122.582
23.5.202412:19:29141.46599,6014.089.91453.264.047
23.5.202414:31:433.30099,80329.34053.267.347
23.5.202414:31:4350.00099,804.990.00053.317.347
23.5.202414:31:4346.70099,804.660.66053.364.047
24.5.202409:51:2612.65898,601.248.07953.376.705
24.5.202409:51:2617.19098,601.694.93453.393.895
24.5.202409:51:2620.15098,601.986.79053.414.045

Samtals vikan549.298
54.761.423

Fyrir framangreind viðskipti í viku 21 átti bankinn 52.864.747 eigin hluti, sem nemur 2,64% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 6.977.319 hluti, sem nemur 0,35% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 703.603.254 í umferðinni.

Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 25. mars síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. júní 2024.

Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 53.414.045 eigin hluti eða sem nemur 2,67% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.