|
|||
2011-03-02 10:31:25 CET 2011-03-02 10:32:25 CET REGLERAD INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirAfkomuspá óbreyttÍ ljósi fjölmiðlaumfjöllunar um tölvupóst framkvæmdastjóra Icelandair ehf. til starfsmanna um að hækkandi olíuverð muni hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins þá skal það tekið fram að Icelandair Group hf. hefur ekki breytt afkomuspá sinni sem gefin var út þann 14. febrúar 2011. Spáin gerði ráð fyrir EBITDA upp á 9,5 milljarða króna. Umfjöllun framkvæmdastjórans vísar til lækkunar á áætlaðri EBITDA fyrir árið 2011 frá rauntölum ársins 2010 upp á um 3 milljarða króna, þrátt fyrir verulega framboðsaukningu á milli ára, sem þegar hefur verið tilkynnt um. Helstu skýringar á þessari lækkun liggja í eldsneytishækkunum á milli ára og fleiri þáttum eins og nánar var tilgreint í tilkynningu þann 14. febrúar sl. Frekari upplýsingar veitir: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, 896-1455 |
|||
|