2020-01-23 19:30:29 CET

2020-01-23 19:30:29 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Orkuveita Reykjavíkur - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveita Reykjavíkur: Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa


Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 23. janúar 2020. Gefin voru út skuldabéf í flokkunum OR 020934 GB og OR180255 GB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 2. september 2034 og 18. febrúar 2055.

Heildartilboð í  OR 020934 GB  voru samtals 870 m. kr. á bilinu 1,68% - 1,78%. Tilboðum að fjárhæð 500 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,69%. Heildartilboð í  OR180255 GB voru samtals 3.316  m. kr. á bilinu 1,75% - 1,82%. Tilboðum að fjárhæð 1.380 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,78%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á „sustainable bond“ markaði Nasdaq á Íslandi.

Nánari upplýsingar veita: 

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími 516-6100, ingvar.stefansson@or.is. 

Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími 522 4008, netfang matei.manolescu@fossarmarkets.com