|
|||
![]() |
|||
2016-10-18 18:45:19 CEST 2016-10-18 18:45:19 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfumÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 340 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,70%. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 1.140 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,13%. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.480 m.kr. Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 24. október næstkomandi. Það sem af er ári 2016 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 13.720 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 62.420 m.kr. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|