2017-06-09 11:15:29 CEST

2017-06-09 11:15:29 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 hf. - Innherjaupplýsingar

N1 hf: Samkomulag um helstu skilmála vegna kaupa N1 hf. á öllu hlutafé í Festi hf.


N1  hf. og SF V slhf. undirrituðu í  dag samkomulag sem tekur á helstu skilmálum
vegna fyrirhugaðra kaupa N1 hf. á öllu útgefnu hlutafé í Festi hf.

Festi  sérhæfir sig  í rekstri  verslunarfyrirtækja og  rekur 28 verslanir undir
merkjum Krónunnar, ELKO, Nóatún og Kjarval en félagið á einnig Bakkann, vöruhús.
Festi  á 17 fasteignir sem  eru annað hvort  í leigu til  verslana félagsins eða
þriðja  aðila.  Heildarstærð  fasteignanna  er um 71.500 fermetrar. Heildarvelta
Festi var rúmir 39 milljarðar króna á rekstrarárinu sem lauk 28. febrúar 2017.

Aðilar  samningsins munu í framhaldi af undirrituninni hefja samningaviðræður um
kaupin  með  það  að  markmiði  að  komast  að  samkomulagi  um  efni  endanlegs
kaupsamnings.   Samningaviðræðurnar   skulu  byggja  á  forsendum  og  skilmálum
samkomulagsins að teknu tilliti til niðurstaðna áreiðanleikakönnunar kaupanda.

Samkomulagið  felur  í  sér  að  heildarvirði  Festi er 37,9 milljarðar króna en
endanlegt kaupverð hlutafjár mun ráðast af skuldastöðu félagsins við afhendingu.
Gera  áætlanir yfirstandandi rekstrarárs ráð fyrir að hagnaður fyrir afskriftir,
fjármagnsliði og skatta (,,EBITDA") verði um 3.340 milljónir króna og eru 2.125
milljónir  króna  vegna  rekstrarfélaga  Festi  en  1.215 milljónir  króna vegna
fasteignastarfsemi  þess.  Heildarvirði  félagsins  getur tekið breytingum vegna
afkomu  rekstrarfélaga Festi. Reynist EBITDA rekstrarfélagana fyrir rekstrarárið
sem  lýkur 28. febrúar  2018 vera hærri  en 2.125 milljónir  króna skal kaupverð
hækka  en þó  aldrei meira  en um  1 milljarð króna verði EBITDA 2.250 milljónir
króna  eða hærri.  Eins og  áður hefur  verið tilkynnt  er spá  stjórnenda N1 að
EBITDA  félagsins verði á bilinu 3.500 til 3.600 milljónir króna á árinu 2017 og
er  því á ætluð EBITDA sameinaðs félags á yfirstandandi rekstrarári um 6.850 til
7.050 milljónir  króna  en  ekki  hefur  verið  tekið  tillit  til  samlegðar  í
framangreindum tölum.

Kaupverð  verður greitt annars vegar með  76.086.957 hlutum í N1 á genginu 115,
eða  sem  nemur  8.750 milljónum  króna  og  hins  vegar  með yfirtöku skulda og
lántöku.  Seljendur skuldbinda sig  til að hvorki  selja né framselja helming af
þeim hlutum í N1 sem þeir fá afhenta fyrir 31.12.2018. Komi til viðbótargreiðslu
vegna  betri afkomu Festi hf. mun sú greiðsla  vera í formi hluta í N1 á genginu
115 en þeir hlutir munu jafnframt falla undir sölubann fram til 31.12.2018.

Viðskiptin  eru  meðal  annars  háð  skilyrðum  um  (i)  að  samkomulag náist um
endanlegan  kaupsamning, (ii) að stjórn  og hluthafafundir beggja aðila samþykki
kaupin,    (iii)    framkvæmd    áreiðanleikakönnunar    og    (vii)    samþykki
Samkeppniseftirlitsins. Gangi viðskiptin eftir er gert ráð fyrir að þeim ljúki á
1. ársfjórðungi 2018.

Nánar verður gerð grein fyrir viðskiptunum þegar kaupsamningur liggur fyrir.

Ráðgjafi N1 í viðskiptunum er fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf.



Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1

"Það  er  afar  ánægjulegt  að  kynna  fyrirhuguð  kaup  N1 á Festi en þau skapa
tækifæri  til að byggja upp enn  öflugra félag sem er betur  í stakk búið til að
takast   á  við  síbreytilegt  samkeppnisumhverfi.  Festi  rekur  annað  stærsta
smásölufyrirtæki  landsins og sjáum við mikla  möguleika á samþættingu í rekstri
fyrirtækjanna  og betri nýtingu á góðum staðsetningum verslana og þjónustustöðva
beggja fyrirtækja."



Jón Björnsson, forstjóri Festi

"Það munu opnast nýir möguleikar fyrir Festi með auknum fjölda
smásölustaðsetninga, bæði í þróun smásöluverslunar sem og í smásölutengdri
fasteignastarfsemi. Kaupin eru ánægjuleg viðurkenning á því frábæra starfi sem
starfsfólk fyrirtækja Festi hefur unnið á s.l. árum í að búa til frábær
vörumerki sem standa fyrir góða hluti."



Nánari upplýsingar veitir Eggert Kristófersson, forstjóri (eggert@n1.is)


[]