2009-12-16 09:51:42 CET

2009-12-16 09:52:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sveitarfélagið Álftanes - Fyrirtækjafréttir

- Tilkynning er varðar fjármál sveitarfélagsins


Á 73. fundi bæjarstjórnar Álftaness, 4. nóvember s.l., var samþykkt tillaga
meirihluta bæjarstjórnar um að senda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
tilkynningu í samræmi við ákvæði 75. gr. sveitarstjórnarlaga. 

Unnin hefur verið rannsókn á rekstri og fjárreiðum sveitarfélagsins af hálfu
Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og var kynnt bæjarstjórn 9.
desember s.l. 

Í skýrslunni er fjárhagsvanda sveitarfélagsins lýst og eru viðræður í gangi
milli Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Sveitarfélagsins Álftaness
um aðgerðir til að koma fjármálum sveitarfélagsins á réttan kjöl. Ekki hafa
verið teknar ákvarðanir um framhaldið en búast má við ákvörðun í þeim efnum á
allra næstu dögum. Vísast af þessu tilliti til 4. mgr. 73, laga nr. 45/1998,
i.f. 

Bæjarstjórinn á Álftanesi,
Pálmi Þór Másson